Friday, April 18, 2008

Eurovision 2008, úrslitariðill.

Fimm þjóðir þurfa ekki að taka þátt í keppninni. Það eru ,,risarnir fjórir", auk gestgjafans. Ég sé að nöfnin á löndunum koma ekki inn á playlistann (eins og ætti að vera þar sem nú stendur RSS), en þetta eru Bretar - Þjóðverjar - Frakkar - Spánverjar - Serbar. Ég spái því að franska lagið sigri þessa keppni.



Eurovision 2008, riðill 2.

Ég útbjó playlista með öllum lögunum sem eru með Íslandi í riðli í forkeppni Eurovision. Lögin eru í sömu röð og þau verða í Sebíu þann 22. maí. Ég er búinn að hlusta á báða riðlana og myndi segja að við hefðum lent í þeim erfiðari. Uss...

[Þess má geta, að playlistinn hér að neðan er búinn til á síðunni radioninja.com. Það er síða á mínum vegum, en hún fór í loftið nú um helgina. Hægt er að nálgast þennan playlista þar og bæta honum inn á bloggsíðuna sína.]



Thursday, April 17, 2008

Eurovision 2008, riðill 1.

Ég ríð á vaðið með því að pósta lögunum úr Eurovision 2008. Það er útsláttarfyrirkomulag á keppninni og þjóðum skipt í tvo riðla. Hér kemur riðill 1, en á morgun ætla ég að henda saman riðli 2. Ástæðan fyrir þessari viðleitni minni, er að sjálfsögðu brennandi Eurovision áhugi. Belgílska greip mig. Lag Azerbadjan er horror.

Updeit: Einhverra hluta vegna virðist playlistinn ekki virka. Ég læt vita hér á þessari síðu þegar playlistarnir detta í lag.
.




Smá intró

Hér er ætlunin að pósta playlistum sem hafa verið útbúnir á radioninja.com. Ég geri ráð fyrir að innan skamms verði ekki hægt að þverfóta á internetinu fyrir síðum sem þessari hér. Vesgú.